Aiiii caramba, the pretty little thing!

Welcome to the craaaaaaasy world of Zwandyz#8

27.05.2007 20:26:25 / zwandyz

Bíllinn er andsetinn!!!

Jæja við höfðum samband við tryggingarnar og kom í ljós að þær vildu ekki dekka þetta:(

Og þar sem það leit út fyrir að við myndum ekki ná að laga bílinn fyrir mánudaginn var reddað gömlum VW Gof frá 1985 sem þurfti aðeins að laga og koma í gegnum skoðun.

Nema hvað, Golfinn var svo illa farinn að það tæki lengri tíma en viku að gera við hann þannig að pabbi gamli fór á fullt að leita að innréttingu í Seatinn sem brann.

Með heppni fann hann bílapartasala stutt frá sem var viljugur að selja okkur innréttinguna á 3500 kr danskar. Vel sloppið þannig að það var farið í gang með að þrífa bílinn hátt og lágt að innan og skella inn nýju innréttingunni.

Það var klárað í gær og vorum við svo ánægð að bíllinn væri komin í lag og var lagt af stað til Köben í morgun.

Bíllinn keyrði vel alla leiðina til Árhús, eina sem angraði okkur var að það er enn smá brunalykt úr miðstöðinni en ekkert sem er ekki hægt að lifa án.

Við náðum ferjunni í Árhús og sigldum til Kalundborg og þá byrjaði bíllinn allt í einu að haga sér undarlega.

Við byrjuðum að heyra sláttarhljóð og stýrið hristist frekar mikið og töldum við þetta koma frá dekkinu farþegameginn að framan.

Við skelltum varadekkinu á og enn hélt þetta áfram þannig að hinu dekkinu var skellt undir aftur.

Við stoppuðum reglulega til að reyna að finna út hvað þetta gæti verið en sáum ekkert athugavert.

Eftir tæpa 80 km versnaði hljóðið og hristingurinn verulega og vorum við heppin að vera við hliðina á neyðarsporinu á hraðbrautinni því að við vissum að eitthvað myndi gerast.

Á tæplega 120 km hraða hægðum við á okkur með svaka hristingi og látum og á tæplega 80-90 finnum við hvernig bíllinn pompar og rennur áfram, við getum engan veginn stoppað. Piet var með bremsuna í botni og ég reif í handbremsuna og loksins stoppaði bíllinn.

Við kíktum út og var dekkið ekki brotið undir bílnum, leit þannig út allavega og þurftum við að kalla á autohjælp því bíllinn gat augljóslega ekki keyrt neitt meir.

Þegar autohjælpen kemur og dregur bílinn upp á pallinn kemur í ljós að hringurinn hjá bremsudisknum var mölbrotinn og vorum við heppin að vera ekki á miðri hraðbrautinni þegar þetta gerðist því myndi ég líklegast ekki vera að skrifa núna.

Við höfum ákveðið að losa okkur við bílinn, hann hefur algjörlega verið til vandræða síðan við fengum hann og ég get svo svarið það að hann er andsetinn:klikk:

Mamma er með þá kenningu að þetta sé tengt afmælisdeginum sínum, það gerist alltaf eitthvað slæmt á honum.

Annars vil ég óska múttunni minni til hamingju með daginn í dag.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 18:03:32 / zwandyz

Það ætlar ekki að fram af okkur ganga:(

Jæja frekar slæmar fréttir héðan, en við vöknuðum mjög illa í morgun við það að mamma kom inn og æpti að bíllinn okkar stæði í ljósum logum.

Ég og Piet stukkum náttla upp og hlupum út og inn á verkstæði þar sem bíllinn okkar stóð og var gjörónýtur.

Neisti hafði komist í áklæðið á bílnum og varð hann fljótt alelda að innan en sem betur fer náði pabbi að slökkva eldinn áður en eldurinn náði að breiða sér út í bygginguna.

Eftir allt sjokkið var skoðað bílinn og sem betur fer leit þetta verr út en það er í raun. Innréttingin í bílnum er það eina sem eyðilagðist og er bíllinn þarafleiðandi ekki ónýtur.

Við munum tala við tryggingarnar á morgun og sjá hvað þær segja, ef við erum dekkuð þá verður bíllinn líklegast borgaður út þar sem þetta er of stórt tjón en ef þeir dekka þetta ekki verðum við bara að finna annan eins bíl og skipta um innréttingu.

Annars er ekkert mikið að frétta héðan, erum stödd á Jótlandi eins og er, vorum í fermingu hjá litlu sys á fimmtudaginn, svaka skvísa stelpan.

Nú er bara að finna sér bíl til að komast heim til Köben aftur og á meðan við fáum út úr tryggingunum:$

Þartil seinna, adios


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 17:45:01 / zwandyz

Í Eyjum ég skemmti mér....

...um verslóóóó

Hvað segir fólkið, er ekki stemning í að fara til Eyja um verslunarmannahelgina?

Ég er búin að kaupa miðann allavega :haha:

Kem til Íslands 20 júlí og heim aftur 8. ágúst, Piet kemur líka með en fer heim aftur 27. júlí því hann er ekki í lengra sumarfríi.

Svo viku áður er 3d sónarinn, gaman gaman


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 16:28:40 / zwandyz

Á Jótlandi ég skemmti mér...

.....tralalalalaalaaaa.....

Er búin að vera í góðu yfirlætir hér hjá múttu og gjörsamlega éta á mig gat:haha:

Langar barasta ekkert aftur til Köben, alltof gott að vera hérna heima hjá múttu og slappa af og borða góðan mat. Keyri til Köben aftur á morgun og við tekur venjulegt líf á þriðjudaginn:cry:

Skóli og vinna, ullabjakk:((

Samt ekki nema tæpur mánuður eftir af skólanum, get varla beðið eftir að komast í sumarfrí, stefnt er á að kíkja til klakans í sumar í 2-3 vikur með Norrænu, gaman gaman.

Maður verður að sýna fólkinu þarna á klakanum bumbuna er það ekki;)

Annars er ekkert mikið í fréttum líkt og vanalega, nema ég er búin að opna síðu fyrir litla krílið, endilega kíkið og skrifið í gestabókina;)

http://www.barnanet.is/funderhansen

Sólskinskveðja frá DK:haha: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 19:46:22 / zwandyz

12 vikur komnar

og fór í hnakkaþykktamælinguna í dag og kom hún bara ljómandi vel út.

Fékk að sjá krílið og heyra hjartsláttinn sem var alveg yndisleg tilfinning:lol:

Það reyndar svaf í byrjun sónarins, ég var að vonast eftir því að það myndi vera á hreyfingu og svona en nei nei það var bara afslappað með hendina fyrir andlitinu og svaf vært.

Það vaknaði reyndar aðeins í enda sónarins og klóraði sér aðeins í hausnum eða setti höndina allavega fyrir augað á sér.

Svo eru bara 6 vikur í næsta sónar, get varla beðið og séð hversu mikið það hefur stækkað.

Við höfum möguleika á að fá að vita kynið í þeim sónar en ég hef ákveðið að við viljum ekki vita það, þannig að allir verða að bíða fram í október og sjá hvað leynist í bumbunni.

Enda þetta með myndum sem ég fékk og koma svo fólk, kommenta hérna, það kemur fullt af fólki inn á síðuna á hvejrum degi en enginn kommentar, væri gaman að vita hverjir eru að skoða blaðrið í mér.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 22:29:39 / zwandyz

08.08.08 er stóri dagurinn

Jæja þá hefur kallinn farið niður á hnén og beðið mín:haha:

Byrjaði á að gefa mér 18 karata gullhálsmen með 9 demöntum og safír stein.

Eftir það fór hann á hnén með 18 karata hvítagullshring með 2 demöntum og grænum steini sem ég er ekki alveg viss hvað heitir en hann er víst dýrari en safír steinninn.

Hér er mynd af herlegheitunum:haha:

Þetta er semsagt gjöfin sem ég talaði um í fyrri færslu, hefði aldrei giskað á skartgripi þar sem ég er ekki mikið fyrir þá en ég er gjörsamlega ástfangin af hálsmeninu.

Ég fékk að ákveða daginn og valdi auðvitað 08.08.08

Eitt og hálft ár til stefnu og ég er sko strax byrjuð að plana þetta allt:haha:

Anyways, gotta go


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 19:01:30 / zwandyz

Hey alle úbba

Fjör og gaman, eða ekki....

Jaaaa eða það fer eftir skapinu, hormónarnir eru alveg að fara með mig, get verið svaka glöð eina stundina og næstu er ég grenjandi.

Sakna Piets alveg ógurlega mikið en hann getur þó þakkað fyrir það að vera ekki hérna því að það minnsta sem hann segir getur pirrað mig alveg ógurlega.

Urraði allavega allsvakalega á hann á msn áðan. Og grenjaði á meðan. Það má ekkert segja rangt við mig þá langar mig að grenja og æ skapið er bara ekki upp á sitt besta núna.

Aftur á móti ætlar Piet að gleðja mig allsvakalega þegar hann kemur heim, er búin að kaupa einhverja svaka dýra gjöf handa mér og ég fæ ekki að vita fyrr en ég fæ hana8|

Gjöfin kostar ca 60 þús á Indlandi en ca 250 þús í Danmörku, þannig að ef einhver hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið þá endilega kommentið og giskið á hvað þetta er:haha::haha:

Talaði við socialráðgjafa í dag vegna fæðingarorlofsins og skólans og svona og þar var mér ráðlagt að hætta í skólanum eftir prófin í júní. Svo þarf ég að hætta að vinna til þess að geta fengið styrkinn sem ég á rétt á, því það má ekki vinna með honum:(

Svo hringdi ég á kollegíið í Herlev til að fá að vita hvort ég myndi nokkuð detta út af listanum því ég væri ekki í skóla heldur í fæðingarorlofi en sem betur fer eigum við rétt á íbúðinni.

Jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti

Smá bumbumynd í lokin

Kveðja Svandís


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 14:45:08 / zwandyz

Við erum búin að fá nýjan...

.....bíl:haha:

Ótrúlega flottur:haha::haha:

Við erum allavega svaka ánægð með hann. Flottur liturinn og svona.

Við eigum bara eftir að skipta út felgunum, dekkja rúðurnar og setja annan spoiler á hann.

Annars er ekkert mikið að frétta, var reyndar að vinna í nótt og þurfti að kalla til lögregluna til vegna þjófnaðar.

Vaktmaðurinn var einmitt til staðar þegar þetta gerðist, annars hefði aldrei þurft að kalla til lögregluna þar sem ég get ekkert gert ef fólk er að stela.

Það kom maður inn og skilaði flöskum, fékk semsagt pant tilbaka og spurði hvort hann gæti keypt sér pulsu fyrir 18 kr. Ég neitaði og hann fór aftur.

Ca 10 mín seinna kemur hann aftur og er eitthvað að vesenast í kælinum. Ég var svosem ekkert að kippa mér upp við það, var að afgreiða aðra kúnna en svo kemur hann að kassanum og spyr aftur hvort hann geti ekki fengið puslu á 18 kr og enn svara ég nei að ég geti það ekki.

Þá spyr hann hvort hann megi skila bjór... Ég spyr hvort hann sé keyptur hjá okkur og hann neitar og segir að hann sé frá Þýskalandi, þá segi ég að ég geti þá ekkert tekið við bjórnum.

Vaktmaðurinn stendur allan tímann og fylgist með þessu og bíður þar til maðurinn fer út úr búðinni og biður hann um að sýna sér hvað er í vösunum hjá sér.

Kemur þá ekki í ljós að "þýski" bjórinn sé úr kælinum frá okkur. Hann semsagt ætlaði sér að stela einni kippu.

Kalla þurfti svo til lögregluna sem var helvíti lengi að koma sér á staðinn og var mér ekkert farið að líða neitt svaka vel með þennan kall þarna inni.

Og ekk nóg með það þá var gaurnum sleppt eftir að skýrslan hafði verið tekin þannig að ég gat alveg átt von á honum seinna um nóttina ef honum dytti í hug að kíkja við8|

Sem betur fer slapp ég við það.

Þetta er önnur helgin í röð þar sem einhver vandræði eru, seinasta helgi þurfti að kalla á lögregluna vegna slagsmála og búðarborðið var sko í milljón molum eftir það atvik.

Vona bara að það verði minna um þetta, þoli ekki svona mikið stress lengur:D

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 14:29:37 / zwandyz

Lalalalalala

ekkert mikið að frétta héðan, fékk bara svaka löngun í að blogga aðeins.

Reyndar er hálfgert stríð byrjað hér í Köben, Ungdomshuset ef einhver hefur ekki heyrt það hefur verið ryðið eða fólkið sem var í því var allavega hent út og götubardagar hafa verið síðustu daga vegna þessa.

Kvöldið áður en húsið var rýmt voru svaka sprengingar hérna á Amager, við héldum fyrst að þetta væru flugeldar en þegar 15 mínútur af stanslausum sprengingum voru liðnar var okkur ekkert farið að lítast á blikuna.

Fréttirnar komu samt ekki með neinar upplýsingar um þetta fyrr en daginn eftir, þannig að við fórum í rúmið án þess að vita það að aðeins um það bil 300 metrum frá okkur var fyrsta styrjöldin byrjuð.

Þeir sem ekki vita það þá búum við tiltölulega stutt frá Christianiu og var verið að henda bensínsprengjum og heimalöguðum sprengjum.

Daginn eftir var svo Ungdomshuset rýmt en það er aðeins lengra frá okkur en Christiania.

Við höfum svosem ekkert orðið mikið varar við slagsmálin þó þau séu svona stutt frá, enda er best að halda sig frá þessum látum, ekkert gaman að vera að kíkja á þetta og komast svo á sakaskrá fyrir að horfa á eða vera á vitlausum stað á vitlausum tíma;)

Óléttan gengur ágætlega, ógleðin er búin að minnka en þegar hún kemur þá er ég virkilega veik, er fegin að vera ekki búin að æla þar sem ég bókstaflega HATA að æla, en ég býst svosem ekki við því að ég geti haldið mikið lengur aftur af mér. Svo byrjaði ég allt í einu að fá svaka bakverki en það er aðallega vegna skólatöskunnar minnar, þoli greinilega ekki að halda á þungum hlutum þannig að ég reyni að halda mig frá því núna. Jafnvægisskynið hefur samt versnað til muna og fólk sem þekkir mig ætti að vita að það er alls ekki góður hlutur þar sem ég hef liggur við ekki jafnvægisskyn fyrir(ástæðan fyrir klaufaskap mínum:haha:) en ég hef dottið niður stiga tvisvar sinnum núna og einu sinni á leiðinni upp stiga, hehe, er farin að passa mig aðeins, sérstaklega á leið niður stiga;)

Annars er allt gott að frétta, Piet er að selja bílinn sinnog ég fer með bílinn í þessari viku til Randers og kíki til múttu í leiðinni og sæki nýjan bíl þar. Við erum semsagt að kaupa stærri bíl og ódýrari.

Aftur á móti var ráðist á Piet um daginn eða réttara sagt bílinn og þarf að senda hann í réttun og sprautun vegna þessa, við vonum bara að fólkið sem ætlar að kaupa bílinn hætti ekki við.

En já þetta er orðin frekar löng færsla þannig að ég stoppa hérna 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:45:20 / zwandyz

Sónarinn búinn og....

....fallegur hjartsláttur var sjáanlegur, mér hefur aldrei verið jafn létt:)

Fóstrið er búið að vaxa um heilan sentimeter á þessum 2 vikum sem er bara frekar gott, er orðið 13 mm eða 1,3 cm.

Var ekkert voða ánægð með móttökurnar sem ég fékk hjá þessu læknum, fannst læknirinn frekar kuldalegur.

Hann byrjaði á að segja, af hverju ertu hér? Útaf blæðingum? Jááá.... hefuru verið með magaverki, já svaraði ég, bakverki? já þð hefur líka verið.

Já þá ertu bara búin að missa!

Mér fannst þetta nú frekar kuldalegt komment hjá honum, hann sýndi enga samúð né fullvissaði mann um það að það gæti vel verið að þetta hefðu bara verið milliblæðingar eins og kom svo í ljós.


Hefði miklu frekar viljað lenda á sama lækni og seinast, hún hafði þó hæfileika í mannlegum samskiptum.

Jæja hef þetta ekki lengra í dag

Kveðja Svandís 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 20:10:26 / zwandyz

Sónar í dag

Jæja ekkert svaka góðar fréttir héðan, lenti á slysó í gær vegna þess að það byrjaði að blæða í fyrradag.

Ég hafði engar svaka áhyggjur þar þar sem að þetta leit út fyrir að vera gamalt blóð en varð frekar skelkuð í gær þegar það var frískt blóð komið.

Piet talað við vinkona mömmu sinnar sem er læknir og ljósmóðir sem sagði að við þyrftum að láta kíkja á þetta ef mér liði illa og þar sem ég hef verið með verki vinstra megin þá ákváðum við að láta kíkja á þetta.

Fórum á slysó í Hvidovre þar sem yndislegt starfsfólk tók á móti okkur, róaði mig niður og redduðu mér neyðartíma á kvensjúkdómadeildinni í dag.

Við mættum svo í morgun en þurftum að bíða í tæpan einn og hálfan tíma eftir að komast inn.

Þar tók við okkur yndislegar konur, hjúkrunarfræðingur og læknir sem settu mig í sónar og þreifuðu á mér.

Sónarinn sýndi 3,5 mm fóstur en enginn hjartsláttur var komin þannig ð við eigum að mæta aftur eftir 13 daga til að sjá hvort hjartslátturinn er komin og hvort barnið sé lifandi.

Þær sögðu að allt liti mjög vel út og að það gæti komið fyrir að það blæði í byrjun meðgönguninnar en þær gætu engu lofað um að allt væri í lagi, það kæmi fyrst í ljós í næsta sónar.

Annar hefur ekkert blætt meira, nema það kom smá áðan en það er mjööööög ljóst þannig að ég vona bara að þetta séu restar af tíðablæðingum.

Ég krossa allavega fingur og vona að þið gerið það fyrir mig líka


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 13:23:45 / zwandyz

Stórfréttir....

.....sem bædi gledur og sjokkerar fólk8|

Já, ég var ad komast ad tví ad ég er ófrísk.

Tetta er frekar mikid sjokk, enda ekki planad en samt sem ádur mjøg velkomid.

Piet er yfir sig ánægdur en ég er enn ad jafna mig, er ekki enn búin ad gera mér grein fyrir tessu en tad kemur líklega....

Vid erum náttla ekki búin ad vera lengi saman, tannig ad tetta sjokkerar fólk frekar mikid en vid rádum fram úr tessu saman og framtídin sínir bara hvad kemur.

Tetta er kannski frekar snemmt ad tilkynna tetta en tar sem mjøg margir hafa frétt tetta tá skiptir tad ekkert miklu tótt ég tilkynni tetta hér...

Ætladi ad bída framyfir 12 viku, semsagt komast yfir safe tímabilid, en hey madur hefur tá studninginn ef madur missir, og eins og ég sagdi tá vita tetta nú flestallir tannig ad tetta skiptir ekkert svaka miklu:haha:

Annars er fyrsta læknisheimsóknin á morgun, býst vid ad fá tíma hjá ljósmódur eftir tann tíma, og tá fæ ég ad vita hversu langt ég er komin, en mínir útreikningar eru um tad bil 6-8 vika.

Jæja, læt stadar numid hér:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 21:43:21 / zwandyz

Gleðileg jól....

...og farsælt komandi nýtt ár:haha:

Ekkert mikið að frétta héðan, er komin til jótlands í faðm fjölskyldunnar og byrjuðu jólin ekkert alltof vel, aðfangadagur fór í það að fara á læknavaktina og fara svo á penicillin.

Og ekkert apótek opið í 50 km fjarlægð!! Læknirinn var samt svo góður að hann reddaði mér skammtinum sem ég þurfti, nú er bara að vona að ég nái að jafna mig fyrir nýárskvöld*krossaputta*

Verst er bara að ég mun ekki fara að drekka á gamlárs eins og planið var vegna lyfjanna og sýkingarinnar:(

En það kemur dagur eftir þennan dag, mér var greinilega ekki ætlað að drekka;)

Stelpurnar eru í Köben, héldu jól saman í gær, frétti að maturinn þeirra hefði tekist mjög vel. Svo er Flosrún á leið til Kanada í nótt *ÖFUND*....hefði ekkert á móti því að vera að fara.

Svo ákvað ég að flýta heimferðinni minni til Köben þar sem ég sakna Piet alveg svakalega:S

Já svo er ég loksins komin í 6? töluna, semsagt 15 kg farin og ég er aðeins 69 kg núna, vona bara að það haldist yfir jólin, ekki mikil hreyfing í gangi hérna:lol:

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra, enda þetta með að segja enn og aftur
GLEÐILEGJÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 19:51:57 / zwandyz

Stela frá Hönnu:-Þ

One try (no cheating & no backspacing)
Type your first name with your...

1.Fingers: Svandís
2.Chin:  sv sandfíks
3.One finger, eyes closed: Svandís
4.Elbow:  swvazndcís
5.Nose: svandís
6.Palm: svbsandís

Hanna!!! Ertu með tannstöngla höku, olnboga og lófa!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 17:28:40 / zwandyz

Ísland og Akureyri á næstu dögum

Jamm flýg nú bara á morgun til klakans og fer beint í rúmið og svo til Akureyrar býst ég við.

Annars er ekkert að frétta, 12 kg farin en það gengur voða illa að losna við seinustu kílóin, vona að það fari að koma.

Og koma svo fólk, kommentið, hvar eru kommentin frá fólkinu sem virðist skoða síðuna?

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Kr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1598 dögum
Myndasöfn